Samantekt um þingmál

Stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti

811. mál á 150. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að tryggja réttindi launafólks og tryggja þeim atvinnurekendum stuðning sem horfa fram á umfangsmikið tekjutap vegna faraldurs kórónuveiru og aðgerða, sem honum tengjast. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til ríkissjóður greiði hluta launakostnaðar atvinnurekenda á uppsagnarfresti launþega til þess að draga úr líkum á fjöldagjaldþrotum fyrirtækja. Gert er ráð fyrir að þessi fjárstuðningur verði bundinn ákveðnum skilyrðum. Þá er gert ráð fyrir að þeir launamenn sem sagt er upp störfum skuli hafa forgang að sambærilegu starfi hjá fyrirtækinu skyldi hagur þess vænkast innan ákveðins tíma. Við slíka ráðningu myndu þeir áfram njóta þeirra réttinda sem þeir höfðu áunnið sér í starfi áður en til uppsagnar kom.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög.

Kostnaður og tekjur

Ljóst er að talsverð óvissa er um hversu mikill kostnaður mun falla á ríkissjóð vegna þessa úrræðis, sem ræðst annars vegar af fjölda þeirra sem koma til með að nýta sér úrræðið og hversu háar greiðslur verða fyrir hvern launþega. Miðað við þær forsendur sem stuðst er við í áhrifamatinu er áætlað að brúttókostnaður ríkissjóðs gæti numið um 27 milljörðum kr.

Afgreiðsla

Samþykkt með töluverðum breytingum, s.s. þeim að upphafsdegi viðmiðunartímabils tekjufalls var breytt úr 1. mars 2020 í 1. apríl 2020 og komi til endurráðningar launamanns innan sex mánaða skal hann halda sömu kjörum, sem hann hafði þegar honum var sagt upp, í samræmi við ráðningarsamning. Enn fremur verður Skattinum gert skylt að birta upplýsingar um hvaða atvinnurekendum hefur verið ákvarðaður stuðningur úr ríkissjóði samkvæmt lögunum.

Aðrar upplýsingar



Síðast breytt 02.06.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.